Hluthafaspjall ritstjóranna framvegis í loftið í opinni dagskrá síðdegis á mánudögum
25. janúar 2026
Það eru nokkur tíðindi að hlaðvarpsþátturinn okkar Sigurðar Más Jónssonar á Brotkast.is, Hluthafaspjall ritstjóranna, verður framvegis sýndur í opinni dagskrá síðdegis á mánudögum.
Við tökum þáttinn jafnan upp í hádeginu á föstudögum. Nýjasti þátturinn sem tekinn var upp sl. föstudag þar sem við fengum þá Heiðar Guðjónsson, fjárfesti og nýkjörinn formann stjórnar Íslandsbanka, og Grím Sæmundsen, forstjóra Bláa lónsins
frá upphafi og frumkvöðulinn að fyrirtækinu, fór einmitt í loftið sl. mánudag og hægt að nálgast hann á Youtube og Spotify - og auðvitað á efnisveitunni Brotkast.is.
Þess má geta að Grímur mun láta af störfum sem forstjóri Bláa lónsins um miðjan mars og setjast í stjórn fyrirtækisins.
Þetta var öflugur þáttur og hægt er að nálgast hann hér í heild sinni.
Gjörið svol vel Grafarvogsbúar sem aðrir landsmenn!
Að venju byrjar þátturinn á spjalli okkar Sigurðar Más þar sem við tölum hispurslaust um það sem efst er á baugi í viðskiptalífinu og þá ekki hvað síst hjá skráðum fyrirtækjum í Kauphöllinni.
Ræddum sl. föstudag m.a. um verðbólguna, lækkandi gengi Íslandsbanka eftir stjórnarkjörið, verðhækkanir hins opinbera og Veitna - og auðvitað fórum við nokkrum orðum um Grænland en Amaroq
rauf 100 milljarða virðismúrinn sl. fimmtudag. Þá komu kaup Símans á Öryggismiðstöðinni til tals en síðarnefnda fyrirtækið hefur miklar tekjur af hælisleitendum.
Mestu munaði þó um hve við fengum góða gesti til okkar - að venju. Að þessu sinni Heiðar Guðjónsson, fjárfesti og nýkjörinn formann stjórnar Íslandsbanka, og Grím Sæmundsen, forstjóra Bláa lónsins frá upphafi og frumkvöðulinn að fyrirtæki, en hann lætur af störfum sem forstjóri um miðjan mars og sest í stjórn fyrirtækisins.
Þá er ætlunin að setja inn fleiri stuttar klippur úr þætttinum á FB, Instagram, Youtube og Tiktok. - JGH

Heiðar Guðjónsson í stúdíóinu með okkur félögum.

Grímur Sæmundsen, forstjóri, frumkvöðull og stofnandi Bláa lónsins.

Við birtum talsvert af glærum í hverjum þætti. Hér er hluti þeirra sem við brugðum á skjáinn í þættinum.


