HAPPY1 ók fram hjá þegar steypt var í Langarima. Táknrænt!

3. júlí 2026

Þegar Grafarvogur.net var við Langarima á tólfta tímanum í dag að fylgjast með steypuframkvæmdum við gangstéttina í Langarima - frægustu gangstéttinni í Grafarvogi - ók þar Tesla fram hjá með bílnúmerinu HAPPY1.


Svolítið táknrænt því auðvitað eru allir ánægðir og „happy“ með hversu vel Hildur Björnsdóttir borgarstjóri brást við eftir að Soffía Jóhannesdóttir, 93 ára, slasaðist illa vegna misfellu á gangstéttinni.


Hildur lét strax fara í að laga stéttina á löngum kafla.


HAPPY2 hefði eiginlega þurft að aka fram hjá.


Við erum að minnsta kost líka ánægð með þetta; „happy too“ með þetta. - JGH

Það fór vel á því að HAPPY1 sýndi sig í Langarimanum meðan á steypuframkvæmdum stóð. Við erum líka ánægð með þetta; HAPPY2 með þetta.