Hefjast formlegar viðræður Hildar um nýjan meirihluta um helgina?
RÚV segir frá því í frétt að Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, hafi boðað oddvita Miðflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks til funda við sig í dag til að fara yfir stöðuna og að tíðinda geti verið að vænta um helgina og að hugsanlega hefjist formlegar viðræður Hildar um nýjan meirihluta. (Meðfylgjandi mynd er fengin af vef RÚV).
Hér er frétt RÚV í heild sinni:
„Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík sendi Ara Edwald oddvita Miðflokksins, Björgu Magnúsdóttur oddvita Viðreisnar og Einari Þorsteinssyni oddvita Framsóknar fundarboð í morgun þar sem ræða á myndun nýs meirihluta í borginni.
Hildur sat fund hafnarstjórnar fram að hádegi og búist er við að fundirnir með oddvitunum hefjist upp úr hádegi.
Hildur fundar einslega með hverjum og einum, ekki hafa fengist upplýsingar um fundarstaði, en samkvæmt heimildum fréttastofu verða fundirnir þrír á mismunandi stöðum.
Tíðinda gæti verið að vænta um helgina
Samkvæmt heimildum fréttastofu er ólíklegt að tilkynnt verði um veruleg tíðindi í dag. Hildur er sögð ætla að fara yfir niðurstöður þessara funda með sínu baklandi síðdegis og í kvöld. Það yrði þá um helgina, líklega á morgun, sem tilkynnt yrði um einhverjar formlegar meirihlutaviðræður.“ - JGH

Það er allt á fleygi ferð á bak við tjöldin. Hvern eða hverja velur Hildur? (Mynd: RÚV – Kristrún Eyjólfsdóttir).

