Háir vextir hafa áhrif - fé streymir inn á reikninga bankanna
Jónar í hverri höfn, segir einhvers staðar. Það urðu mjög líflegar umræður á fundi Samtaka sparifjáreigenda á Reykjavik Natura hótelinu í morgun þar sem við nafnarnir, ég og Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka höfðum framsögu.
Ég fór yfir helstu stærðir í efnhagslífnu þegar kemur að sparnaði einstaklinga en ljóst er að háir vextir hafa skilað góðri ávöxtun á innlánsreikningum bankanna á síðasta ári á sama tíma og daufara hefur verið yfir verðbréfamarkaðnum.
Ekki fer á milli mála að háir vextir hafa áhrif á sparnað og fé streymir núna inn á innlánsreikninga bankanna en fram kom á fundinum að ekki sé ólíkegt að það leiti fljótt út aftur um leið og vextir lækka eitthvað að ráði.
Líflegur og skemmtilegur fundur.
Hér má sjá erindi mitt. - JGH

Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka, á fundinum í morgun.

Undirritaður á fundinum hjá Samtökum sparifjáreigenda í morgun.


