Esjan toppaði sig í morgun
30. apríl 2026
Það er kominn tími til að vorið hristi veturinn alveg af sér og fari að blómstra. Snemma í morgun gerði slyddu og það varð til þess að það gránaði í Esjunni - svona niður í miðjar hlíðar.
Eigum við ekki bara að segja að Esjan hafi toppað sig í morgun þótt ekki hafi verið um alvarlegan ístopp að ræða.
Er ekki hægt að krefjast betra veðurs þótt það verði ekki gert í kröfugöngunni á morgun? - JGH

Það má alveg fara að hlýna svolítið.

Það gerði slyddu snemma í morgun og Esjutoppurinn varð hvítur.


