Frábært í alla staði fyrir hverfið! Grafarvogurinn verður heimili NBA-körfunnar í ágúst. Alvöru þriggja siga karfa hjá Fjölni!
Karfan er svo sannarlega í mikilli sókn í Grafarvoginum undir styrkri stjórn köruboltadeildar Fjölnis. Nýjustu tíðin eru þau að Grafarvogurinn verður heimili NBA-körfuboltans í eina viku í ágúst í sumar. Frábært í alla staði.
Um er að ræða hinar þekktu Elite Camp-æfingabúðir sem verða í Egilshöllinni dagana 5. til 9. ágúst nk. og eru fyrir aldurshópinn 7 til 17 ára en Fjölnir er með sérlega sterk lið í yngri flokkunum í körfunni.
Eyþór Ívar Jónsson, forseti fyrirtækisins Akademias og stjórnarmaður í körfuboltadeild Fjölnis, segir í samtali við Grafarvogur.net að til standi að verða með alls kyns viðburði í Grafarvoginum í kringum þessar frægu æfingabúðir.
Meðal annars er unnið að því að landa MasterClass í þjálfun og fara yfir það hvað við Íslendingar getum lært af þjálfurum í NBA-deildinni.
Á meðal stórstjarna sem mæta í Grafarvoginn í sumar í tengslum við Elite Camp eru þeir Michael Cooper og Irving Thomas en þeir léku með hinu fornfræga félagi LA Lakers á árum áður.
Sérlega ánægjuleg tíðindi og augljóslega unnið gróskumikið starf í körfunni í Grafarvogi.
Áfram Grafarvogur og Fjölnir.
- JGH

Elite Camp er alvöru þriggja stiga karfa hjá Fjölni. Það er mikil gróska í körfutboltanum í Grafarvogi.

Elite Camp-æfingabúðirnar verða í Egilshöll í ágúst og samhliða því verður Grafarvogurinn heimili NBA-körfunnar.

Eyþór Ívar Jónsson er stjórnarmaður í körfuboltadeild Fjölnis og einn þeirra sem mikið mæðir á í tengslum við Elite Camp í sumar hjá Fjölni.


