Gullinbrú lokuð út úr hverfinu en straumurinn mikill úr Grafarvogi - dagur íslenskrar náttúru

16. september 2026

Þrátt fyrir að Gullinbrú væri lokuð fyrir allri umferð úr hverfinu í gærdag vegna malbikunarframkvæmda var mikill straumur úr Grafarvogi; að vísu ekki um brúna heldur undir brúnni.


Svo við leikum okkur aðeins með þetta.


Vorum þarna á ferð við brúna eftir hádegi í gær til að fylgjast með framkvæmdum.


Vogurinn okkar skartaði sínu fegursta og það var gaman að fylgjast með útfallinu - þegar það fjaraði og sjórinn dróst hratt til baka úr voginum.


Mikil náttúrufegurð.


Það fer vel á því á því að birta þessa fegurð við voginn í dag; á Degi íslenskrar náttúru.


En hann er haldinn á fæðingardegi Ómars Ragnarssonar, hins mikla náttúruunnanda. - JGH

Straumurinn lá úr Grafarvogi í gærdag en í dag er Dagur íslenskrar náttúru.

Útfallið kröftugt.

Niður náttúrunnar undir Gullinbrú.

Dagur íslenskrar náttúru er í dag, 16. september, á fæðingardegi Ómars Ragnarssonar, fréttamanns og náttúruunnanda.