Leiðin út úr Hamrahverfinu var kolstífluð um miðjan dag vegna lokunar Gullinbrúar

15. september 2026

Það urðu eðlilega víða umferðartafir í Grafarvoginum í dag vegna malbikunarframkvæmdanna á Gullinbrú en þær stóðu yfir frá átta í morgun og fram eftir degi.


Til stóð að þeim yrði lokið klukkan fjögur en töf varð á opnun Gullinbrúarinnar.


Því gerðist það um klukkan fjögur - þegar talsverð umferð er í hverfinu vegna leikskólanna - að allt kolstíflaðist í Hamrahverfinu.


Að mati þeirra íbúa sem hafa búið lengst í hverfinu hefur svona umferðarstífla ekki sést áður.


En einu sinni er allt fyrst.


Gullinbrúin var síðan opnuð aftur fyrir umferð þegar liðið var talsvert á fimmta tímann og þá leystist úr flækjunni. - JGH

Allt stíflað. Leiðin út úr Hamrahverfinu stíflaðist gjörsamlega um fjögurleytið í dag þegar leikskólar lokuðu.