Dagur íslenskrar náttúru er í dag, 16. sept., á fæðingardegi Ómars Ragnarssonar
Dagur íslenskrar náttúru er í dag, 16. september, á fæðingardegi Ómars Ragnarssonar.
Á vef Náttúrufræðistofnunar segir: „Dagur íslenskrar náttúru er haldinn hátíðlegur ár hvert þann 16. september. Frá árinu 2010 hefur dagurinn verið tileinkaður íslenskri náttúru til að undirstrika mikilvægi hennar.
Dagurinn er fæðingardagur Ómars Ragnarssonar en sem frétta- og þáttagerðarmaður hefur hann lengi verið ötull talsmaður náttúruverndar og stuðlað að aukinni vitund um náttúru Íslands og mikilvægi þess að vernda hana og varðveita.“
Vel til fundið.
Stiklur Ómars eru einar og sér náttúruperlur. - JGH

Grafarvogurinn er ein af mörgum náttúruperlum íslenskrar náttúru.


