Það sýndi sig í dag hvað Gullinbrú er mikilvæg samgönguæð fyrir okkur Grafarvogsbúa

15. september 2026

Það sýndi sig auðvitað vel í malbikunarframkvæmdunum í dag hvað Gullinbrú er mikilvæg samgönguæð fyrir okkur Grafarvogsbúa. Löng röð bíla myndaðist við Hallsveginn eftir hádegi, við gatnamótin við Víkurveg.


Það eru þrjár leiðir inn og út úr Grafarvoginum.


Sú umferðarþyngsta er Gullinbrúin. Síðan er það Víkurvegurinn að Vesturlandsvegi og loks er það Korpúlfsstaðavegurinn upp að hringtorginu við Vesturlandsveg.



Veruleg biðröð við Hallsvegin en það saxaðist svo sem fljótt á hana. - JGH

Þessi var að koma úr Gufuneskirkjugarði og auðvitað var honum hleypt inn í röðina - ella hefði biðin verið í lengri kantinum.

Gullinbrúin lokuð og þá mæddi meira á Hallsveginum.