Jökullinn gaf tóninn í dag fyrir leikinn við Dani: „Sól slær silfri á voga, sjáðu jökulinn loga“
Spennan er heldur betur að magnast í handboltanum á EM í Danmörku. Það er leikdagur og við Íslendingar etjum kappi við Dani kl. 19:20 og eigum við ekki að segja að við höfum betur - að minnsta kosti var Snæfellsjökull fagur að sjá þegar Grafarvogur.net myndaði hann um fjögurleytið í dag frá Hallsteinsgarði og einhvern veginn gaf þessi tignarlega sjón af þessari náttúruperlu Snæfellinga tóninn og von fyrir leikinn.
Sundin blá blasa hér við - nánast spegilsléttur sjór - og ég er ekki frá því að það bliki á hafið.
Við kyrjum svo eftir leik: „Sól slær silfri á voga, ég sé jökulinn loga.“
Það verður erfitt að leggja Danina en það er allt hægt. ÁFRAM ÍSLAND.
Svo er hér allur textinn við lagið Ég er kominn heim en það er m.a. á plötunni Er völlur grær með Óðni Valdimarssyni.
ÉG ER KOMINN HEIM
Er völlur grær og vetur flýr
og vermir sólin grund,
kem ég heim og hitti þig,
verð hjá þér alla stund.
Við byggjum saman bæ í sveit
sem brosir móti sól,
þar ungu lífi landið mitt,
mun ljá og veita skjól.
Sól slær silfri á voga,
sjáðu jökulinn loga.
Allt er bjart fyrir okkur tveim
því ég er kominn heim.
Að ferðalokum finn ég þig
sem mér fagnar höndum tveim.
Ég er kominn heim,
já ég er kominn heim.
ÁFRAM ÍSLAND! - JGH
- JGH


