Fjölfarinn vegur niður að gylltu ströndinni í Gufunesi er gjörsamlega óboðlegur

18. apríl 2026

Þessi fjölfarni vegur niður að gylltu ströndinni í Gufunesi er gjörsamlega óboðlegur. Ökumenn aka hann með því að sveigja bílum til og frá líkt og skíðamenn í góðri brekku.


Mikill fjöldi leggur jafnan leið sína að gylltu ströndinni á sumrin. Þegar Grafarvogur.net var þarna á ferð á föstudaginn var talsvert af fólki í einu af gufuböðunum sem þarna er boðið upp á og hópur á leið á sjóþotur.


Lítið mál að laga. - JGH

Fjölfarinn - en sennilega einn versti malbikaði vegur landsins.