Eik á einn fermetra fyrir hvern landsmann - virði eignanna yfir 170 milljarðar kr.

18. apríl 2026
HLUTHAFASPJALL RITSTJÓRANNA. 
Hér er nýjasti þáttur okkar Sigurðar Más Jónssonar í Hluthafaspjalli ritstjóranna sem sýndur er á efnisveitunni Brotkast.is en gestur okkar að þessu sinni er Hreiðar Már Hermannsson, forstjóri Eikar fasteignafélags, en félagið á yfir 380 þúsund fermetra í atvinnuhúsnæði sem gerir um einn fermetra á hvern landsmann.

Félagið hélt aðalfund sl. fimmtudag og þar bar meðal annars til tíðinda að fyrrum forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, var kjörinn í stjórn félagsins. 

Eik leggur mikla áherslu á að kaupa traustar og góðar eignir til útleigu. Hluthafastefna félagsins gengur m.a. út á að arðgreiðslur sveiflist ekki með hagsveiflum hvers tíma heldur haldist sem stöðugastar. - JGH

Hlaðvarpsþátturinn Hluthafaspjall ritstjóranna. Frá vinstri: Sigurður Már Jónsson, Jón G. Hauksson og Hreiðar Már Hermannsson, forstjóri Eikar fasteignafélags.

Hér er þátturinn í heild sinni.