Fjölnismenn taka á móti ÍR-ingum á föstudag - allir á völlinn, áfram Fjölnir

28. maí 2025
ALLIR Á VÖLLINN. Það verður hörkuleikur á Fjölnisvellinum við Dalhús nk. föstudag kl. 18:30 þegar Fjölnismenn taka á móti ÍR-ingum í Lengjudeildinni. 

Við hvetjum Grafarvogsbúa til að mæta og styðja okkar menn. Ekki veitir af að hvetja liðið áfram en það hefur farið fremur rólega af stað í deildinni. ÍR-ingar eru með hörkugott lið og í þriðja sæti deildarinnar. - JGH