Hörkuleikur í Úlfarsárdalnum á morgun, Fram-KA. Nýkrýndir Íslandsmeistarar hylltir
28. maí 2025
FRAM-KA. Það verður hörkuleikur í Úlfarsárdalnumn á morgun, uppstigningardag, kl. 16:15 þegar Framarar fá KA-menn í heimsókn í Bestu deildinni. Framarar eru um miðja deild en þeir unnu hið skemmtilega lið KR um síðustu helgi.
Íslands- og bikarmeistarar karla í handbolta mæta á leikinn og verða hylltir og heiðraðir fyrir leik Framara á móti KA-mönnum. - JGH

Þeir verða heiðraðir og hylltir á morgun. Bikar og Íslandsmeistarar í handbolta.