Alma Möller með hugvekju í Grafarvogskirkju á morgun kl. 11
28. maí 2025
HUGVEKJA HEILBRIGÐISRÁÐHERRA. Alma Möller heilbrigðisráðherra flytur hugvekju í Grafarvogskirkju á morgun, uppstigningardag, kl. 11.
Löng hefð er fyrir því í Grafarvogskirkju að gera svolítið úr þessum degi og svo verður einnig að þessu sinni og verður veglegt hátíðarkaffi að messu lokinni.
Eldri borgarar er sérstaklega boðnir velkomnir í messuna á morgun.
Vígðir þjónar kirkjunnar þjóna fyrir altari, Katrín Eir Óðinsdóttir annast einsöng og hinn kröftugi Karlakór Grafarvogskirkju syngur.
Uppstigningardagur er einn af helgidögum þjóðkirkjunnar og er jafnframt einn af 15 lögbundnum frídögum almanaksársins.
Uppstigningardagur er fimmtudagurinn fjörtíu dögum eftir páska
og ber því upp á tímabilinu 30. apríl til 4. júní.
Á uppstigningardag er himnafarar Jesú Krists minnst.
Samkvæmt ritningum Nýja testamentisins reis Jesús upp frá dauðum þremur dögum eftir krossfestinguna. Í fyrsta kafla Postulasögunnar segir frá því að Jesús hafi fjörtíu dögum eftir upprisuna verið uppnuminn til himins fyrir augliti lærisveina sinna. - JGH
