Finnur fyrir auknum titringi innan Viðreisnar með samstarfið í ríkisstjórninni
ÁRAMÓTASPJALL RITSTJÓRANNA. Andrea Sigurðardóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu sem fjallar ekki síst um stjórnmál, segir í Áramótaspjalli okkar Sigurðar Más að dregið hafi úr bjartsýni forstjóra á efnahagsumhverfið vegna aukinna útgjalda ríkisins og skattahækkana stjórnarinnar til að minnka fjárlagahallann.
Hún segir að fólk hafi auknar áhyggjur af að stefna ríkisstjórnarinnar leiði til samdráttar.
Hún segist finna fyrir auknum titringi innan Viðreisnar vegna skattahækkana stjórnarinnar og versnandi viðhorfum atvinnulífsins til stjórnarinnar.
Hún segir að það hafi komið sér á óvart að ríkisstjórnin hafi lifað þetta ár eftir allan vandræðagang Flokks fólksins.
Sjá má allt viðtalið við Andreu í meðfylgjandi klippu.
- JGH
Andrea Sigurðardóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu.


