Ferðalög

Eftir Jón G. Hauksson
•
1. mars 2026
Hann var einn af fjölmörgum sem fékk sér göngutúr í hádeginu á göngustígnum við Grafarvoginn. Ég tók hann tali þegar ég var að mynda undir brúnni, Gullinbrúnni sjálfri, en þar er oft mikil traffík þótt ekki sjáist hún frá veginum. Gunnar Hrafn Arnarsson heitir maðurinn, býr við Langholtsveginn, en var á leiðinni „heim“ í Logafoldina með Labradorhundinn sinn, hana Sölku. - „Heim,“ spurði ég. „Jú, ég er alinn upp í Grafarvoginum og er að trítla með hana Sölku í smá kaffi til pabba og mömmu sem búa í Logafoldinni.“

Eftir Jón G. Hauksson
•
1. apríl 2026
Það er vert að vekja athygli á mjög fjölbreyttri dagskrá í Grafarvogskirkju núna í dymbilvikunni og um páskana. Má þar nefna fermingar, heilaga kvöldmáltíð, helgistund við krossinn og söng kórsins á lögum úr söngleiknum Jesus Christ Superstar. Hátíðarmessan verður svo kl. 8:00 að morgni á páskadag, eftir það páskamessa á Eir og Selmessa með upprisuívafi í Borgum kl. 13:00 á páskadag. Fermingarmessurnar á morgun , skírdag, eru kl. 11:00 og 13:30 en sóknin okkar í Grafarvogi er sú stærsta á landinu og fjölmörg börn sem fermast í kirkjunni á ári hverju. Annað kvöld verður svo heilög kvöldmáltíð í kirkjunni og hún hefst kl. 20:00. Á föstudaginn langa verður helgistund við krossinn og þá mun kórinn syngja valda kafla úr söngleiknum Jesus Christ Superstar. Páskamessan verður svo að venju kl. 8:00 að morgni en hún hefur jafnan verið vel sótt. Helgir dagar framundan og starfið í okkar fallegu kirkju fjölbreytt og til fyrirmyndar. - JGH