Fallið formlega frá allri þéttingu í Grafarvogi skv. breytingu á Aðalskipulagi 2040

27. október 2026

Núverandi meirihluti í borgarstjórn ákvað í síðustu viku að falla formlega frá öllum þeim áformum um þéttingu byggðar sem uppi voru á síðasta kjörtímabili varðandi breytingar á Aðalskipulagi 2040.


Þar með hefur verið fallið frá þéttingu byggðar á öllum þeim reitum sem merktir eru með gulu á meðfylgjandi korti og við á Grafarvogi.net birtum nokkrum sinnum í umfjöllun okkar í fyrravor þegar þetta mál brann mjög á Grafarvogsbúum og mótmælin voru afgerandi á meðal íbúa.


Hinn nýi meirihluti fimm flokka sem tók við á síðasta kjörtímabili undir stjórn Heiðu Bjargar Hilmisdóttur setti málið á ís fyrir kosningarnar sl. vor og sagði að það væri verk nýs meirihluta að klára það og ganga frá því.


Nú hefur málið verið afgreitt og hætt við þéttingu byggðar í borginni skv. fyrirhuguðum breytingum á Aðalskipulagi 2040.

Friðjón R. Friðjónsson, varaborgarfulltrúi og varaformaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar.

Í samtali við Grafarvogur.net sagði Friðjón R. Friðjónsson, varaformaður umhverfis- og skipulagsráðs, að málinu væri nú lokið með formlegum hætti og það tekið út úr Skipulagssjá.


Að sögn Friðjóns sátu fulltrúar Samfylkingarinnar hjá við afgreiðslu málsins en fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks samþykktu tillöguna um að falla frá þéttingaráformum síðasta kjörtímabils.


Tillagan var svohljóðandi:

„Með tillögunni er fallið frá þéttingaráformum síðasta kjörtímabils í Grafarvogi og viðkomandi máli lokað í Skipulagssjá. Mikilvægt er að eyða óvissu meðal íbúa um þessi áform og tryggja að opinber skipulagsgögn endurspegli ákvörðunina.


Með skýrum ákvörðunum, gagnsæi og raunverulegu samtali við íbúa vill meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks byggja upp traust í Grafarvogi.


Meirihlutinn leggur áherslu á að framtíðaruppbygging í grónum hverfum taki mið af sérkennum þeirra, innviðum og gæðum nærumhverfis og verði mótuð í virku samráði við íbúa.“


Hér má sjá kortið sem Grafarvogur.net birti nokkrum sinnum og tengilinn inn á vef borgarinnar þar sem hægt var að slá í gulu reitina til að sjá áformin um þéttinguna. - JGH

Kortið sem við birtum nokkrum sinnum í fyrravor. Hér er hægt að sjá það enn betur til gamans á meðfylgjandi tengli. En hvað um það; áformin um þessa þéttingu voru formlega afturkölluð í síðustu viku.