Hvar er breyting Reita á Spönginni statt í kerfinu? Reitir vinna þetta á eigin ábyrgð!

27. október 2026

Enn er ekkert ákveðið af hálfu borgarinnar um þau áform Reita að hefja mikla uppbyggingu í Spönginni og byggja á annað hundruð íbúða á svæðinu. Reitir vinna málið á eigin ábyrgð. Við á Grafarvogi.net höfum sagt að þetta stefni í hitamál í Grafarvogi og Spöngin verði hinn heiti reitur Reita.


Málið er samt á talsverðri hreyfingu og Reitir eru þegar komnir með það í gegnum tvö hlið en það er núna í þriðja hliði, skv. meðfylgjandi korti.


HLIÐ 1: Beiðni Reita: Ákvörðun tekin um að vinna deiliskipulag.

HLIÐ 2: Samþykkt skipulagslýsingar.

HLIÐ 3: Samráðsferli. (Þar er málið núna statt).


Ljóst er að Grafarvogsbúa munu fylgjast grannt með þessu máli sem og auðvitað hinn nýi meirihluti sem þarf að samþykkja endanlegar teikningar Reita og setja málið í hefðbundinn farveg sem merkir að endanlegar tillögur Reita þurfa að fara í gegnum breytt deiliskipulag.


Núverandi meirihluti hefur hætt við þau þéttingaráform sem upp komu á fyrra kjörtímabili en íbúar spyrja sig eðlilega að því hvort fjöldi nýrra íbúða í Spönginni hjá Reitum - jafnvel 170 til 200 - sé í samræmi við þá ákvörðun að hætta við þéttingu í Grafarvogi. Sjá þessa frétt.

Friðjón R. Friðjónsson, varaborgarfulltrúi og varaformaður umhverfis- og skipulagsráðs.

Friðjón R. Friðjónsson, varaborgarfulltrúi og varaformaður umhverfis- og skipulagsráðs, segir í samtali við Grafarvogur.net að það verði að koma skýrt fram að hugmyndir Reita um að breyta Spönginni séu alls ekki samþykktar.


„Það er ekkert samþykkt varðandi áform Reita í Spönginni. En við viljum gjarnan að fyrirtækið vinni hugmyndina áfram í góðu og upplýstu samtali við íbúa í Grafarvogi - eins og það hefur heitið að gera. Fyrirtækið er núna í þriðja hliði, þeim fasa að byrja samráðsferlið,“ segir Friðjón.


„Við eigum til dæmis eftir að fá að sjá skuggavarp á svæðinu og betri vindgreiningar og betur hvernig nákvæmlega bílastæðum verði komið fyrir. Það er talað um bílakjallara fyrir íbúðir og næg stæði fyrir verslun og þjónustu á yfirborði. Það er rætt um lítilsháttar heildarfjölgun stæða þrátt fyrir fjölda nýrra íbúða á svæðinu. Það þarf að vera mjög sannfærandi útfærsla á framkvæmdunum svo okkur finnist hún virka. Verkefnastjórar borgarinnar eiga að fylgja forskrift okkar í þessum efnum. Við erum til dæmis meðvituð um hvernig stæðaskorturinn við Móaveg flæðir yfir í Spöngina og ætlum ekki að samþykkja eitthvað álíka,“ segir Friðjón.

Reitir komnir með breytingarnar á Spönginni í gegnum fyrstu tvo fasana af fimm; þ.e. fyrstu tvö hliðin af fimm. HLIÐ 1: Beiðni Reita: Ákvörðun tekin um að vinna deiliskipulag. HLIÐ 2: Samþykkt skipulagslýsingar. HLIÐ 3: Málið statt þar núna: Samráðsferli.

Friðjón segir að hugmynd Reita um Spöngina hafi komið upp í tíð fyrrverandi borgarstjórnar og hafi farið í svokallaða skipulagslýsingu í vor, rétt fyrir kosningar.


Spöngin fór í samráðsgátt í byrjun maí, fyrsta fasa af fimm. Sjá hér. Alls bárust 7 athugasemdir og engar frá íbúum.


„En í byrjun þessa mánaðar fengum við síðan kynningu frá Reitum á hugmyndum þeirra fyrir deiliskipulag. Kynning Reita er á frumstigi og ætlar fyrirtækið að þróa þær áfram. Við höfum trú á að Reitir vilji gera vel, en við bentum þeim á að þeir þyrftu að passa sérstaklega upp á bílastæði og hæðir húsa.“



Og Friðjón bætir við: „Það verður ekkert samþykkt nema við sjáum gildi í því fyrir íbúa og borgina. 

Reitir eru að vinna málið á eigin ábyrgð.“ - JGH