Þetta verður eitthvað! Stjörnufans á árlegum stórtónleikum Lions til styrktar BUGL

27. október 2026

Það verður sannkallaður stjörnufans á árlegum stórtónleikum Lions í Grafarvogskirkju eftir rúman hálfan mánuð, fimmtudagskvöldið 12. nóvember og miðasala er þegar komin á fullt skrið.


Dísella, Gissur Páll, Hebbi, KK, Mugison, Páll Óskar og Rebekka Blöndal stíga á svið og gera kvöldið eftirminnilegt. Þetta verður eitthvað.


Þetta er í 22. sinn sem Lionsklúbburinn Fjörgyn í Grafarvogi (kalaklúbburinn) heldur þessa tónleika sem eru til styrktar BUGL (Barna- og unglingageðdeild Landspítalans) og líknarsjóði klúbbsins - og hafa listamennirnir sem fram hafa komið í öll þessi ár gefið vinnu sína til að styrkja hið góða málefni.

Nafnarnir og snillingarnir Gissur Páll Gissurarson og Páll Óskar Hjálmtýsson verða í hinum mikla stjörnufans kvöldsins í Grafarvogskirkju.

Ung söngkona, Aþena Rut Friðriksdóttir, kemur fram á tónleikunum en hún verður þjónustu BUGL ævinlega þakklát. Ákveðið teymi þar reyndist henni ómetanlegur styrkur í veikindum hennar. Með framlagi sínu á tónleikunum vill Aþena þakka BUGL hjálpina við að ná bata.


Í hópi undirleikara eru Steingrímur Teague, Ásgeir Ásgeirsson, Pálmi Sigurhjartarson og Lára Bryndís Eggertsdóttir, organisti Grafarvogskirkju. Lára mun væntanlega grípa bæði í flygil og hið frábæra orgel kirkjunnar.


Felix Bergsson verður kynnir á tónleikunum. Heyrst hefur að vinur hans Gunni Helga mæti einnig.


Að vanda mun Lionsklúbburinn Fold (kvennaklúbbur Lions í Grafarvogi) vera með veitingasölu til styrktar sínum líknarsjóði. Fold hefur m.a. styrkt Konukot, Bergið og Einstök börn.


Munið, þetta er eftir rúman hálfan mánuð, 12. nóvember, og um að gera að tryggja sér miða.


Kirkjan ómar og stjörnur skína - svo mikið er víst. - JGH 

Hebbi mætir, Herbert Guðmundsson, og tekur lagið með syni sínum Guðmundi.

Mugison - Örn Elías Guðmundsson - lætur tónana tala og verður öflugur að venju.

Það er ekki nema einn KK, Kristján Kristjánsson. Sjötugur og sjaldan verið betri.

Rebekka Blöndal er ört vaxandi stjarna.

Ung og efnileg söngkona, Aþena Rut Friðriksdóttir, hefur notið mikillar aðstoðar BUGLS og nú stígur hún á sviðið til að þakka fyrir sig. Það munu einhverjir fá ryk í augun við þann söng. 

Hin eina sanna Dísella Lárusdóttir; stórkostleg söngkona.