Ár frá ófærðinni miklu 28. okt. í fyrra þegar hann þessi fór á gönguskíðum í Bónus
Snjókorn tóku að falla þetta kvöld í fyrra, 27. október, en svo kyngdi snjónum niður um nóttina og í dögun þess 28. október vissu borgarbúar vart hvaðan á sig stóð veðrið í fyllstu merkingu; afrakstur næturnnar var slíkur að það var allt á kafi. Borgarbúar byrjuðu að að birta myndir af fannferginu.
Umferðin gekk mjög illa eins og jafnan þegar fyrstu snjóþyngslin verða á haustin. Það sýnir sig þá hversu margir bílar eru illa búnir og fyrir vikið til trafala í umferðinni við þær aðstæður.
Við birtum í fyrra þessa stórskemmtilegu frétt og mynd sem Grafarvogsbúinn Sigurbergur Kristjánsson tók við Bónus af úrræðagóðum viðskiptavini sem skaust í Bónus í Spöngina á gönguskíðum.
Það er ekki á hverjum degi sem Grafarvogsbúar mæta á skíðum í Bónus. En það gerðist þó þriðjudaginn 28. október í fyrra. Þann eftirminnilega dag.
Afrakstur næturinnar verður heldur hóflegri að þess sinni. - JGH

Grafarvogsbúinn Guðrún Ólafsdóttir birti þessa að morgni 28. október í fyrra. Allt á kafi, alls staðar.

Árbæingurinn Gunnbjörn Marínósson birti þessa mynd með orðunum Afrakstur næturinnar.


