Fáni dagsins! Þessi þjóð sló HM-met okkar Íslendinga. HM-veislan í fótbolta hefst 11. júní

1. júní 2026

Það var von að maður vissi ekki neitt um þennan fána hjá Ólafi Sverrissyni, fánaáhugamanni og verkfræðingi í Grafarvogi, þegar hann flaggaði honum á dögunum.


Ólafur á sem kunnugt er stærsta fánasafn einstaklings á Íslandi og flaggar heima hjá sér í Grafarvoginum nánast eins oft og veður leyfir.


En hvaða fáni er þetta? Jú, þetta er fáni Curacao sem er fámennasta þjóðin sem hefur komist á HM í fótbolta og sló þar með met Íslands frá árinu 2018 sem fámennasta þjóð sem tekið hefur þátt í heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu.


Curacao er lítil eyja í Karíbahafinu rétt norður af Venesúela í Suður-Ameríku og íbúafjöldi er talsvert minni en á Fróni, eða um 186 þúsund eyjaskeggjar.


Alls keppa 48 þjóðir á HM í sumar en keppnin fer fram dagana 11. júní til 19. júlí og verður spilað í þremur löndum; Mexíkó, Bandaríkjunum og Kanada.


Og við í Grafarvoginum munum svo sannarlega fylgjast með fánum HM-liðanna því Ólafur á núna fána allra þeirra 48 þjóða sem keppa á HM í sumar og mun flagga eins mörgum og unnt er á þeim 39 dögum sem keppnin stendur yfir.


En sá fyrsti er að minnsta kosti farinn í loftið og hefur tengingu við Ísland með því að Curacao sló metið okkar frá 2018. - JGH

Íbúafjöldi í Curacao er um 186 þúsund.

Curacao er eyja í Karíbahafinun, rétt norður af Venesúela.

Það gustaði um hann í Grafarvogi.

Þessi þjóð sló met okkar Íslendinga.