„Í dag leikur geisli um Grafarvog, um götur og nes og sund,“ orti Sigurbjörn Einarsson
Sólroðinn var svo sannarlega í essinu sínu í gærkvöldi, eins og svo oft áður við voginn okkar fallega.
Þórunn Berndsen, íbúi í Bryggjuhverfinu, birti fallegar myndir á FB-síðu Íbúasamtaka Bryggjuhverfis með orðunum:
„Þessi tvö hús breyttu um lit i kvöld. Þetta er annað kvöldið i röð sem bryggjan verður að gulli og regnboginn að reyna að myndast.“
Glimrandi myndir hjá Þórunni og vissulega kemur textabrotið Sól slær silfri á voga í hugann.
Þess má geta að Dr. Sigurbjörn Einarsson biskup orti sálminn Á vígsludegi í tilefni af vígslu Grafarvogskirkju 18. júní árið 2000 við lag Þorkels sonar síns, en annar sonur hans, Karl Sigurbjörnsson biskup, vígði kirkjuna.
Fyrsta erindið er svona:
Í dag leikur geisli um Grafarvog,
um götur og nes og sund.
Hann sendur er hæstum himni frá
á heilagri náðarstund.
Í dag leikur geisli um Grafarvog.
Fallegt. - JGH

Þórunn Berndsen, íbúi í Bryggjuhverfi, tók þessar myndir og birti með þessum texta: „Þetta er annað kvöldið i röð sem bryggjan verður að gulli.“


