1. júní fer í sögubækurnar í Kauphöllinni. Nú er það svart, því allt er rautt!

1. júní 2026

Það er óhætt að segja að 1. júní 2026 fari í sögubækurnar í Kauphöllinni því þetta er einn svartasti mánudagurinn þar um árabil en Úrvalsvísitalan féll um hvorki meira né minna en 6,44% í dag.


„Nú er það svart, það er ljóst,“ líkt og íþróttafréttamaðurinn orðaði það á sínum tíma. En ef til vill ætti frekar að segja einn sá rauðasti í Kauphöllinni. Flestallar tölur rauðar.


Gengi Oculus féll um 50% og þá hefur hátt olíuverð og meiri svartsýni á vaxtalækkun og að það dragi úr verðbólgunni á næstunni áhrif á markaðinn.


En auðvitað vona allir að Eyjólfur hressist og þessi lækkun gangi eitthvað til baka á næstu dögum.


Hlutabréf eru langtímafjárfesting og stundum er best að horfa framhjá öllum skammtíma sveiflum. - JGH

Erfiður dagur í Kauphöllinni.

Rautt í Kauphöllinni. „Nú er það svart, það er ljóst,“ eins og íþróttafréttamaðurinn sagði. Ef til vill færi betur á að segja í þetta skiptið: „Nú er það rautt, það er ljóst.“