Ljósadýrð í fánalitum í Grafarvogi - íslenska liðið frábært en Danir einfaldlega bestir
1. febrúar 2026
Það er alltaf ákveðin stemning í því þegar einstaklingar og fyrirtæki taka upp á því að bjóða litadýrð í íslensku fánlitunum til stuðnings íslenska landsliðinu. Þannig var þetta við Smárarima í dag sem og á byggingu Landsnets við Gylfaflöt.
Þetta var stór dagur hjá íslenska liðinu sem spilaði við Króta um bronsið en því miður hafðist það ekki vegna afleitrar byrjunar íslenska liðsins þar sem dauðafærum var klúðrað. Í svona leikjum þarf allt að ganga upp og hvert smáatriði skiptir máli.
Íslenska liðið er frábært með marga framúrskarandi leikmenn en Danir eru einfaldlega bestir í handbolta.
En við eigum talvsert inni, eins og sagt er. - JGH

Húsnæði Landsnets við Gylfaflöt. Íslensku fánalitirnar í mikilli litadýrða.

Þetta er öflugt - ljósasjóið við bílskúrshurðina góðu við Smárarima 3 í dag, sem vakti mikla athygli á aðventunni fyrir framúrskarandi jólaskreytingar, var með íslenski fánann „blaktandi“ í dag.

