Einstakar myndir Ástu teknar í Grafarvogi í gærkvöldi. Sólroðinn sjaldan jafn sterkur!
Ásta Þorleifsdóttir jarðfræðingur og Grafarvogsbúi birtir einstakar myndir af sólroðanum í gærkvöldi á FB-síðu sinni. Horft er yfir Geldinganesið í átt að Akranesi og blasir Akrafjallið við sem og hluti Esjunnar lengst til hægri.
Alveg hreint magnaðar myndir hjá henni.
Það er stundum talað um sundin blá sem svo sannarlega urðu sundin rauð í gærkvöldi. - JGH

Horft yfir Geldinganesið og sólroðin ský svífa svo sannarlega yfir Esjunni og Akrafjallinu.
VORKVÖLD Í REYKJAVÍK
Svífur yfir Esjunni sólroðið ský,
sindra vesturgluggar, sem brenni í húsunum.
Viðmjúk strýkur vangana vorgolan hlý,
vaknar ástarþráin í brjóstum á ný.
Kysst á miðju stræti er kona ung og heit,
keyra rúntinn piltar, sem eru í stelpuleit,
Akrafjall og Skarðsheiði eins og fjólubláir draumar.
Ekkert er fegurra en vorkvöld í Reykjavík.

Vorkvöld í Grafarvogi. Fallegt er það.

