Sundagöng eða Sundabrú? Göngin vinna svo sannarlega á við þessa stórkostlegu sýn

2. júní 2026

Ungverjinn Norbert Zoho birti þessa stórkostlegu mynd inni á vefnum Íbúasamtök Bryggjuhverfis í morgun af fegurðinni miklu í gærkvöldi við Grafarvoginn og sundin blá.


Ásta Þorleifsdóttir, jarðfræðingur og Grafarvogsbúi, tók einnig magnaðar myndir af sólroðanum í gærkvöldi líkt og má sjá í þessari frétt okkar.


Á fundi Íbúasamtaka Grafarvogs í Skálanum í Gufunesi fyrir kosningarnar varð frambjóðendum tíðrætt um umferðarmál, umferðarteppur, Samgöngusáttmálann, Borgarlínu og svo barst talið að því hvort Grafarvogsbúar vildu frekar Sundabraut eða Sundagöng.


Þessi stórkostlega mynd Norberts Zoho sem tekin var með dróna í gærkvöldi svarar eiginlega spurningunni um braut eða göng.


Sundagöng vinna svo sannarlega á í því vali við þessa mynd.


Brú myndi breyta myndinni - ekki satt?  - JGH

Sundin blá eiga sér vart hliðstæðu og setja mikinn svip á höfuðborgina. Bryggjuhverfið og Hamrarnir kallast hér mjög hljóðlega á í kvöldkyrðinni.