Einar Bárðarson: Margar stauratunnur ekki vargheldar og fuglinn rífur upp ruslið

29. apríl 2025

Einar Bárðarson tónlistar- og markaðsmaður – og maðurinn á bak við Stóra plokkdaginn – segir að ruslið sem tínt sé upp á Stóra plokkdeginum megi allt eins rekja til fugla frekar en sóðaskapar fólks. Mörg sorpílát á staurum, svonefndar stauratunnur, séu ekki vargheldar og fuglinn rífi upp ruslið í leit að æti.


„Þá má hvetja reykingafólk og nikótínneytendur til að ganga betur um - þeir eru einu alvöru sóðarnir ennþá en þeim fer sem betur fer fækkandi,“ segir Einar í stuttu spjalli við Grafarvog.net.

Nokkrir Rótarýfélagar í Grafarvogi hófu plokkið við Stórhöfðann og plokkuðu meðfram Gullinbrúnni og niður að brúnni. Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri mætti með þeim um morguninn.

Einar var að vonum ánægður með Stóra plokkdaginn sl. sunnudag. „Hann er sá særsti til þessa og það ánægjulega við þetta átak er hvað það hefur góðan meðbyr; dagurinn vex og vex með ári hverju í næringaríkum faðmi Rótarý á Íslandi.“


Forseti Íslands hefur sýnt þessu átaki mikinn áhuga frá upphafi. Að þessu sinni komst Halla Tómasdóttir ekki þar sem hún var á leið heim frá útför páfa í Róm en eiginmaður hennar, Björn Skúlason, hljóp í skarðið.


Þá var Jón Karl Ólafsson umdæmisstjóri Rótarý á Íslandi að sjálfsögðu mættur á svæðið tilbúinn að beita plokktönginni af ákefð. En fjöldinn allur af Rótarý-félögum um land allt tók þátt í verkefninu ásamt áhugasömum plokkurum úr röðum almennings.


Það var árið 2018 sem Einar fékk hugmyndina og hann ákvað að hrinda henni í framkvæmd sama ár. Plokkdagurinn vakti strax athygli og þótt hann væri ekki stór í sniðum í upphafi þá var hann kominn á kortið, kominn til að vera.

Jón Karl Ólafsson, heiðursfélagi í Fjölni og umdæmisstjóri Rótarý á Íslandi, mætti með tínslutöngina. Stóri plokkdagurinn er unninn í samvinnu við Rótarý sem heldur utan um verkefnið ásamt Einari.

„Ég mátti til, ég hafði dáðst lengi að mönnum eins og Tomma Knúts, Tómasi J. Knútssyni, manninnum á bak við Bláa herinn, sem létu umhverfið sig varða og unnið að hreinsun umhverfisins sl. þrjátíu ár; þeir hafa verið mér og öðrum mikill innblástur í umhverfismálum. Ég vildi varpa ljósi á þeirra afrek og hvetja aðra til að koma í þetta með þeim. Margir aðrir hafa líka tekið til hendinni og við hin horft á með furðu og hugsað sem svo; „Þetta er skrítið, þarna er fólk sem tínir upp rusl eftir aðra“.“


Einar segir að rusl í umhverfi okkar komi hvað mest frá ílátum sem ekki ráða við verkefnið sitt; ílátin séu ekki nægilega þung, illa lokuð og opnist í ofsaveðrum – og þá sé margar stauratunnur ekki vargheldar og fuglinn rífi upp úr tunnunum í leit að æti.


Þess má geta að nokkrir Rótarýfélagar í Grafarvogi voru mættir upp á Stórhöfða á sunnudagsmorgun til að tína meðfram Gullinbrú og niður að brúnni. Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri mætti og tók til við að tína með þeim. - JGH

Björn Skúlason hljóp í skarðið fyrir eiginkonu sína, Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands. Með honum á myndinni eru þau hjón Áslaug Thelma Einarsdóttir og Einar Bárðarson.

Elín Birna Bjarnfinnsdóttir, plokkari frá Eyrarbakka, plokkar á hverjum degi og er einn af öflugustu plokkurum landsins. 

Sígild sorptunna - svonefnd stauratunna - sem vargfugl tínir rusl upp úr í leit að æti.