Ekki eins og Big Mac-vísitalan en það er komin Ein með öllu-vísitala á Bæjarins bestu
Hún er athyglisverð fréttin í Morgunblaði dagsins þar sem sagði frá verðhækkunum á pylsum hjá Bæjarins bestu frá nóvember 2020 og fylgdi línurit sem sýndi verð á einni með öllu á Bæjarins bestu. Komin Ein með öllu-vísiala á Mogga. Mjög skemmtileg frétt og minnir svolítið á fréttir af Big Mac-vísitölunni hjá tímaritinu The Economist þó ólíku sé saman að jafna.
EIN MEÐ ÖLLU: 880 KRÓNUR
„Í dag kostar pylsan á Bæjarins bestu 880 krónur og hefur hækkað um 19% á síðustu tveimur árum. Kók kostar 450 krónur og því er þjóðarrétturinn kominn upp í 1.330 krónur. Það er 200 krónum dýrara en fyrir tveimur árum,“ segir í frétt Moggans.
Á rúmum fimm árum hefur verðið hækkað um 76%. En til fróðleiks má geta að í 4% verðbólgu þá tvöfaldast verðlag (100%) á 18 árum.
TVÆR MEÐ ÖLLU OG KÓK: 1.690 KRÓNUR
Fram kemur í fréttinni að framkvæmdastjóri fyrirtækisins, Baldur Ingi Halldórsson, segi að launakostnaður hafi aukist fram úr hófi auk þess sem aðrar hækkanir bíti í. Hann bendi á að Bæjarins bestu bjóði upp á frábær tilboð og verðið sé umtalsvert lægra ef fólk nýtir sér þau. Þannig kosti tvær pylsur og kók 1.690 krónur og fjölskyldutilboð, sex pylsur og fjórir drykkir, 3.500 krónur.
„Stærsti þátturinn í þessu eru laun en hráefniskostnaður og opinber gjöld hafa líka hækkað. Heilbrigðiseftirlitið er til dæmis búið að þrefalda verð á stuttum tíma,“ segir Baldur Ingi.

Hin skemmtilega frétt Morgunblaðsins í dag þar sem fylgst er grannt með verðinu á Bæjarins bestu.
BIG MAC-VÍSITALAN
Fyrst við erum að nefna Big Mac-vísitöluna þá er rétt að rifja upp um hvers konar vísitölu þar er að ræða. Hún er gefin út af tímaritinu The Economist og er nýstárleg leið til að mæla hvort markaðsgengi gjaldmiðla mismunandi landa sé ofmetið eða vanmetið.
Hún gerir þetta með því að mæla hvern gjaldmiðil miðað við sameiginlegan staðal – Big Mac-hamborgarann sem McDonald's veitingastaðir um allan heim selja.
Tvisvar á ári breytir Economist meðalverði Big Mac í Bandaríkjadali á því gengi sem gildir á þeim tímapunkti. Þar sem Big Mac er fullkomlega stöðluð vara um allan heim er röksemdafærslan sú að hann ætti að hafa sama hlutfallslega verð í öllum löndum.
Mismunur á verði Big Mac, mælt í dollurum, endurspeglar því
mismun á kaupmætti hvers gjaldmiðils og segir þannig til um kaupmátt innan hvers lands líka.
- JGH


