Eins og í vegagerð úti á landi. Samgöngustjóri gaf í skyn að ljósin yrðu færð í fyrra horf

25. mars 2026

Umferðarmál hafa legið þungt á Grafarvogsbúum og ekki síst hefur sú breyting sem gerð var á umferðarljósunum á gatnamótum Strandvegar, Gufunesvegar og Rimaflatar valdið óánægju og umtal. Þar eru miklar tafir og virka ljósin eins og í vegagerð á sumrin úti á landi þar sem vinnu-umferðarljós eru sett upp og umferð úr gagnstæðri átt hleypt á víxl framhjá framkvæmdunum. 


Breytingin sem borgin gerði við þessi umferðarljós var sú að umferð úr gagnstæðri átt rennur ekki samtímis yfir þau og fyrir vikið myndast oft teppur og gatnamótin gætu nýst miklu betur.


Þessi ljós fengu töluverða umfjöllun á íbúafundi Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarstjóra í Grafarvoginum um miðjan febrúar sl.


SAMGÖNGUSTJÓRI STÉ Í PONTU

Þegar saumað var að borgarstjóra um þessi mál fékk hún Guðbjörgu Lilju Erlendsdóttir , verkfræðing og samgöngustjóra borgarinnar, upp í pontu til að fara yfir málin.


Samgöngustjóri sagðist vita af töfunum og óánægju Grafarvogsbúa með þessa breytingu á ljósunum og sagði meira að segja: „Nú, þessi breyting er greinilega ekki að virka.“


Ekki var hægt að skilja orð hennar öðru vísi en að þessi umferðarljós yrðu færð í fyrra horf en fundarmenn sögðu að þarna yrði að gera miklu meira og það strax, fara í alvöru framkvæmdir, gera beygjuvasa, jafnvel hringtorg; þ.e. allt til að liðka til fyrir umerðinni um þessi gatnamót.


Núna er einn og hálfur mánuður liðinn frá fundinum en ekkert bólar á breytingum og að ljósin séu komin í fyrra horf.  - JGH 

Fjölmenni var á íbúafundinum sem var haldinn á Bóksafni Grafarvogs. Hér er beðið eftir því að fundurinn hefjist.

Trausti Harðarson, íbúi í Grafarvogi, var einn margra á fundinum sem lét óánægju sína í ljós með umferðarljósin og lagði raunar til að samgöngustjóri myndi vinda sér í verkið sem fyrst eftir fundinn og láta breyta umferðarljósunum svo umferð verði greiðari um gatnamótin og þau afkasti meiri umferð á álagstímum. Samgöngustjóri gaf í skyn á fundinum að ljósin yrðu færð í fyrra horf.

Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir, verkfræðingur og samgöngustjóri borgarinnar, sté í pontu á fundinum og fór yfir þær breytingar sem hefðu verið gerðar á umferðarljósunum við þessi gatnamót.