„Ég er að ræða um allt önnur göng en Vegagerðin kynnir,“ segir Guðlaugur Þór

10. október 2025

„Vegagerðin er ekki að tala um það sem ég er að tala um,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins í samtali við Morgunblaðið í morgun. En þar er hann inntur eftir viðhorfum gagnvart sjónarmiðum Vegagerðarinnar um brú fremur en göng við gerð nýrrar Sundabrautar sem tíunduð eru í umhverfismatsskýrslu sem væntanleg er frá Skipulagsstofnun.


„Göngin sem Vegagerðin er að tala um fara niður á sama stað og koma upp á sama stað en þarna er bara verið að tala um göng frá Gunnunesi að Skarfabakka,“ segir þingmaðurinn og segir um allt aðra framkvæmd að ræða. „Þeir [Vegagerðin] láta í þessu eins og þær áskoranir sem augljóslega eru uppi séu bara ekki til og eru ekkert að tala um sömu göng,“ segir Guðlaugur Þór í viðtalinu.


Ekki fer á milli mála að stóraukinn áhugi er á meðal Grafarvogsbúa að fá Sundagöng fremur en Sundabraut - enda allar líkur á að slík brú stórauki umferð um Grafarvoginn og raski þess utan mjög umhverfinu við sundin blá sem er annálað fyrrir fegurð.


Ekki verður heldur með góðu móti séð hvernig hugmynd um Sundabraut eða Sundagöng - sem liggja eingöngu að Vogahverfinu geti staðist - en umferðarþungi um Vogahverfið og Sæbrautina er þegar komin að þolmörkum.


Grafarvogur.net birti sl. vor mynd frá Guðlaugi um hugmyndir hans varðandi Sundagöng sem lægju frá Kollafirði og kæmu upp á ýmsum stöðum. .


Við endurbirtum hér þessa mynd frá Guðlaugi.

Hugmynd Guðlaugs Þór af Sundagöngum - allt annarri útfærslu og hugmynd en Vegagerðin er með í huga. Stóraukinn áhugi sýnist núna hjá Grafarvogsbúum að fá Sundagöng fremur en Sundabraut.

Guðlaugur Þór segir ennfremur í viðtalinu við Morgunblaðið að einhver verði að svara því hvernig Sæbrautin, sem beri ekki þá umferð sem nú fer um hana, geti borið meiri umferð.


„Það eru margir gallar við að setja tvær hraðbrautir gegnum eitt hverfi,“ segir hann, „þú verður að hleypa Mosfellingum, fólki í Úlfarsárdal og fólki í Grafarholti í Sundatenginguna og þú gerir það ekki öðruvísi en að gera það sem sagt er að ekki verði gert – að tvöfalda Hallsveginn eða leggja aðra umferðaræð í gegnum Grafarvoginn.“


Hann bætir því við að sú umferðaræð muni þvera Geldinganes sem rýri mjög verðgildi þess og lífsgæði þeirra sem þar eigi að búa.


„Þetta svæði er á stærð við Seltjarnarnes og ég held að allir átti sig á því að Seltirningar yrðu ekkert rosalega ánægðir með að fá hraðbraut í gegn hjá sér. Þegar Vegagerðin er að segja að hún vilji ekki göng er hún að tala um allt önnur göng, hún er bara að tala um þverunina frá Gufunesi yfir í Sundahöfn.“ - JGH .

Hugmyndir Guðlaugs Þórs um ný Sundagöng eru allt aðrar en þau göng sem Vegagerðin er með í huga.