Leikdegi á HM fagnað í Grafarvogi, Frakkland-Senegal. A la Ólafur Sverrisson verkfræðingur

16. júní 2026

Ólafur Sverrisson, verkfræðingur og hinn kunni fánaáhugamaður í Grafarvogi, flaggaði í morgun í tilefni af leik Frakklands og Senegals sem hefst kl. 19:00 í kvöld.


Það var góður blástur í Hamrahverfinu í Grafarvogi og fánar Ólafs fögnuðu að sjálfsöðu vindinum og tóku vel við sér.


Margir spá Frökkum heimsmeistaratitlinum. - JGH

Leikdagur á HM og Ólafur Sverrisson, íbúi í Grafarvogi, flaggaði í tilefni leiks Frakklands og Senegals.