Abstrakt í Hamrahverfinu á Degi íslenskrar náttúru!
Það má víst bæði segja afstrakt og abstrakt þegar kemur að myndlistinni. Hvað um það; við skulum nota abstrakt.
Og náttúran var svo sannarlega abstrakt í Hamrahverfinu í Grafarvoginum í morgun á Degi íslenskrar náttúru.
Hressileg haustlægð með mikilli úrkomu og vindi fór yfir landið.
Hugmyndin að þessum texta hér er komin frá FB-færslu vinkonu minnar Ágústu Ragnarsdóttur, listakonu í Þorlákshöfn, í morgun.
En lauf féllu í Grafarvogi og röðuðu sér upp án nokkurrar reglu; í algerri óreiðu.
Þetta var ekki skipulagt kaos.
Þetta var abstrakt. - JGH

Engin regla, þetta var abstrakt í Grafarvoginum í morgun.

Götumynd í Grafarvogi í dembunni í morgun. Abstrakt.

