Andri Snær hlýtur verðlaun Sigríðar í Brattholti á Degi íslenskrar náttúru
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, veitti í dag á Degi íslenskrar náttúru, Andra Snæ Magnasyni rithöfundi Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti.
Viðurkenningin er veitt einstaklingi sem unnið hefur markvert starf á sviði náttúruverndar og er þetta í sautjánda sinn sem hún er afhent.
Í fréttatilkynningu frá umhverfisráðuneytinu segir meðal annars: „Andri Snær hefur um árabil verið ötull málsvari náttúrunnar og vakið almenning til vitundar um náttúruvernd og loftslagsbreytingar og afleiðingar þeirra fyrir náttúru og samfélag.“
En hver var þessi Sigríður í Brattholti?
Hún var Tómasdóttir, (1871-1957) og var húsfreyja á bænum Brattholti sem er skammt frá Gullfossi. Hún varð þjóðþekkt fyrir framtak sitt til verndunar fossins og baráttu gegn áformum um að að virkja hann.
Hún er talin brautryðjandi á sviði náttúruverndar á Íslandi.
Það er vel við hæfi að kenna viðurkenninguna við hana.
- JGH

Andri Snær hlaut í dag náttúruverndarviðurkenningu umhverfisráðuneytisins sem kennd er við Sigríði Tómasdóttur í Brattholti.


