Sýn. Er nafnabreytingin upphafið að einhverju meiru?
HLUTHAFASPJALLIÐ. VIÐSKIPTI.Er nafnabreytingin hjá Sýn upphafið að einhverjum meiri breytingum? Eða er bara verið að breyta til að breyta? Bréf félagsins hafa lækkað um 24% á árinu.
Um þetta er fjallað í nýjasta þætti hlaðarvarps okkar Sigurðar Más Jónssonar , HLUTHAFASPJALLINU, á Brotkast.is en Helgi Vífill Júlíusson, hlutabréfagreinandi hjá IFS/Reitun, er annar tveggja gesta þáttarins.
Þeir Sigurður Már og Helgi r æða nafnabreytinguna og hvað felist í því að nöfnin Stöð 2 og Vodafone séu sett til hliðar. Núna heitir þetta til dæmis Sjónvarp Sýnar.
Er Sýn að segja upp Vodafone-nafninu og hvaða þjónustu mun félagið fá frá Vodafone í framtíðinni? Verða uppsagnir í framhaldinu og hvernig verður rekstrinum breytt?
Verður til dæmis auðveldara að leggja niður fréttastofu Stöðvar 2 eftir að Stöðvar 2-nafnið er horfið? Er Sýn að taka upp Símamódelið en í því er engin fréttastofa? Spurningarnar eru margar?
Stóra málið fyrir hluthafa er hins vegar ekki nafnabreytingin heldur hvort Sýn takist að hagræða og ná fram auknum hagnaði á næstu misserum svo gengi bréfa í félaginu í Kauphöllinni taki að hækka. - JGH
Sigurður Már Jónsson og Helgi Vifill Júlíusson.

Gengi hlutabréfa Sýnar í Kauphöllinni undanfarin fimm ár. Það fór hæst í tæplega 70 í ágúst árið 2022. Núna er það um 24. Áhersla hluthafa er að félagið verð verðmeira.