Ritstjóri Grafarvogur.net á meðal fjórtán sem fengu gullmerki Blaðamannafélagsins

30. janúar 2026

Það var ánægjulegt fyrir mig sem ritstjóra og útgeganda Grafarvogur.net að vera heiðraður með gullmerki Blaðamannafélags Íslands ásamt fjórtán öðrum fyrir að hafa starfað í faginu í yfir 40 ár og helgað blaðamennskunni ævistarfið. Þarna vorum við þrír sem höldum úti fréttamiðlum og eru hvort tveggja í senn ritstjórar og útgefendur.


Á opnunarmyndinni hér að ofan er ég með félaga mínum í hlaðvarpinu Hluthafaspjall ritstjóranna, Sigurði Má Jónssyni, en svo skemmtilega vildi til að hann var einnig sæmdur gullmerki félagsins. Við unnum saman um tíma á DV fyrir um fjörutíu árum.


Eftir að hafa útskrifast sem viðskiptafræðingur af hagfræðibraut frá Háskóla Íslands vorið 1980 vann ég í eitt ár sem aðstoðarmaður Konráðs Guðmundssonar, hótelsstjóra á Hótel Sögu. En eitthvað var það við ritvélina sem togaði í mig og ég hóf störf snemma árs á DV árið 1982, eða fyrir 44 árum, aðeins nokkrum mánuðum eftir að síðdegisblöðin tvö, Vísir og Dagblaðið, voru sameinuð í Síðumúlanum forðum.


Þarna voru raunar fleiri gamlir vinnufélagar frá DV-árunum í Síðumúlanum forðum sem fengu gullmerki félagsins; eða þeir Þorsteinn Joð og Arnar Páll Hauksson. Nokkuð síðan ég hef hitt þá.


Skapti Hallgrímsson, eigandi og ritstjóri Akureyri.net var sömuleiðis í heiðurshópnum en við kynntumst vel þegar ég var óvænt beðinn um að fara norður sumarið 1985 og taka við DV á Akureyri en þar var ég í tvö ár. DV og Mogginn voru þá bæði með blaðamenn og skrifstofur á Akureyri og var töluverð keppni á milli blaðanna í bænum. Við stofnuðum Norðurlandsdeild blaðamannafélagsins á þessum árum ásamt blaðamönnum á Degi og fleirum á svæðinu. „Og lögðum deildina líka niður,“ heyrðist í  horni þegar ég færði þetta í tal í hófinu síðdegis.


Páll Ketilsson, ritstjóri og útgefandi Víkufrétta var sömuleiðis í hópnum en við vorum báðir með sjónvarpsþætti um árabil á ÍNN og Hringbraut.  - Jón G. Hauksson

Með Skapta Hallgrímssyni, til hægri, ritstjóra og útgefanda Akureyri.net en við kynntumst vel fyrir fjörutíu árum þegar undirritaður var beðinn um að fara norður og taka við DV á Akureyri en Skapti var þar fyrir Moggann.

Með Páli Ketilssyni, ritstjóra og útgefanda Víkurfrétta í Keflavík en við vorum báðir með sjónvarpsþætti á ÍNN og Hringbraut um árabil.

Með félaga mínum í hlaðvarpinu Hluthafaspjall ritstjóranna, Sigurði Má Jónssyni, en við fjöllum vikulega um viðskipti, efnahagslífið og helstu tíðindi skráðra fyrirtækja í Kauphöllinni.