Jón Bjarni stóð vaktina við rjúkandi grillið og réttirnir ruku út
Jón Bjarni Guðmundsson, stjórnarmaður í BUR, Barna- og unglingaráði Fjölnis, stóð í ströngu við grillið á leiknum í gær við Vestra og rjúkandi réttirnir ruku út.
Bikarinn fór á loft og Fjölniskonur Íslandsmeistarar í 2. deild kvenna í knattspyrnu. Vel gert.
„Það voru um sjö til átta hundruð pylsur sem fóru ofan í krakkana fyrir leikinn en við vorum hér með mikla uppskeruhátíð. Ég geri ráð fyrir að grilla um 300 borgara,“ sagði Jón Bjarni.
Hann var að gera allt klárt við grillið skömmu áður en blásið var til hálfleiks, sagðist vera að flambera borgarana og það væri góður hiti í grillinu, svona eins og ætti að vera í öllum góðum grillum.
Barna- og unglingaráðið heldur utan um veitingarnar á vellinum og ágóðinn fer að sjálfsögðu í unglingastarf Fjölnis sem er með miklum blóma.
Gott mál!
Meðfylgjandi er stutt vídeó-viðtal okkar við Jón Bjarna.
Skemmtilegur og hress maður. - JGH
Jón Bjarni við grillið í gær á leik Fjölniskvenna við stöllur sínar í Vestra.


