Yfir 50 þúsund bílar runnið í gegn hjá Glans hjá Olís við Gullinbrú. 50% afsláttur af því tilefni
Glans-þvottastöðin við Gullinbrú í Grafarvogi hefur náð þeim áfanga að hafa þvegið yfir 50.000 bíla. Stöðin náði áfanganum á aðeins 388 dögum frá opnun í september 2025. Engin önnur Glans-stöð hefur verið jafn fljót að ná þeim áfanga. Þá sýna Grafarvogsbúar stöðinni mikla tryggð því nær fjórir af hverjum fimm þvottum á Gullinbrú eru áskriftarþvottar - og er það hæsta hlutfall allra Glans-stöðva Olís. Í tilefni af 50 þúsund bíla áfanganum verður boðið upp á 50% afslátt á stökum þvotti tímabundið úr 3.490 kr. í 1.745 kr. á Glans við Gullinbrú í dag og um helgina. Raunar byrjaði þetta tilboð sl. miðvikudag. Þá er tjöruleysirinn mættur til leiks á stöðvum Glans og veitir ekki af í rysjóttri tíð.

Vinsælasta Glans-þvottastöðin er hjá Olís við Gullingbrú. Stöðin náði 50 þúsund bíla markinu á aðeins 388 dögum frá opnun í september 2025. Engin önnur Glans stöð hefur verið jafn fljót að ná því marki.
„Við erum þakklát Grafarvogsbúum fyrir frábærar viðtökur. Það er greinilegt að hverfið hefur tekið Glans að sér og margir koma aftur og aftur,“ segir Sigurður Helgi Ólafsson, forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Olís.
Hann segir ennfremur að verð á áskrift á Glans-stöðinni hafi haldist óbreytt frá upphafi, 6.490 krónur á mánuði fyrir ótakmarkaðan þvott - og að nú hafi verið kveikt á tjöruleysinum sem sé kominn í allar stöðvarnar.
Glans Gullinbrú er opin allan sólarhringinn og býður upp á kvöld- og næturverð eða 30% afslátt af stökum þvottum milli kl. 23 og 7 á morgnana.
Þess má geta að Grafarvogur.net fylgdist með byggingu Glans-stöðvarinnar á sínum tíma en þar var eitt sinn lítið útibú Landsbankans í Grafarvogi - og sem við frumbyggjar í Grafarvogi voru tíðir gestir í um hver mánaðamót með bunka af reikningum. Bankinn var sömuleiðis með bílalúgu.
Það hefur því oft verið margt um manninn á Glans-reitnum við Gullinbrú, líkt og nú. - JGH

Hér hafa 50 þúsund bílar runnið í gegn á aðeins 388 dögum - eða 129 bílar á dag.

Olís við Gullinbrú er við helstu umferðaræðina í Grafarvogi og setur mjög svo svip sinn á gatnamót Gullinbrúar, Fjallkonuvegar og Lokinhamra.

Yfir 50 þúsund bílar á mettíma og af því tilefni 50% afsláttur í dag og um helgina af stökum þvotti.


