Einhver efnilegasti skákmaður landsins er í Rimaskóla. Lærði mannganginn fyrir rúmu ári

25. nóvember 2026

ann lærði mannganginn í tafli fyrir einu ári og þykir núna einn allra efnilegasti skákmaður landsins. Hann er aðeins 13 ára, er í Rimaskóla og keppir fyrir Skákdeild Fjölnis. Oftar en ekki bregður honum fyrir á myndum frá skákæfingum Fjölnis. Við erum að tala um Anh Hai Tran. Skákmeistarar landsins eiga vart orð til að lýsa hæfileikum hans líkt og fram kemur í skemmtilegri frásögn af Anh Hai Tran í Vísi á dögunum og viðtali við hann. Á sterku skákmóti í Garðabæ nýlega, Skákþingi Garðabæjar, gerði hann sér lítið fyrir og náði jafntefli við Björn Þorfinnsson, alþjóðlegan skákmeistara, sem vann allar sínar skákir á mótinu nema eina, jafnteflisskákina við Anh. (Meðfylgjandi mynd af Anh er fengin á Vísi og ljósmyndari er Einar).


Í viðtalinu við Vísi kemur fram að Anh, sem er frá Víetnam, lærði ekki aðeins mannganginn fyrir rúmu ári heldur einnig íslensku sem hann talar nún reiprennandi. Við Grafarvogsbúar getum svo sannarlega verið stoltir af Grafarvogsbúanum okkar Anh Hai Tran.

Anh Hai Tran er 13 ára Grafarvogsbúi og í Rimaskóla. Hann þykir eitt mesta efni sem fram hefur komið í skákinni hérlendis um langt árabil. (MYND/Vísir/Einar).

Í viðtalinu á Vísi er rætt við Björn Þorfinnsson um jafnteflisskákina við Anh á Skákþingi Garðabæjar. Sjáum hvað hann segir: „Og svo að menn haldi ekki að ég sé ekki eitthvað aumingjagóður þá skipti þessi skák mig gríðarlegu máli, ég er að reyna að hækka á stigum og má ekki við því að tapa stigum með því að gera jafntefli við stigalægri menn. Ég reyndi allt, ég er búinn að tefla í meira en þrjátíu ár, er með mikla keppnisreynslu og ég lagðist á drenginn, reyndi allt hvað ég gat að vinna hann og ég er eiginlega ennþá alveg agndofa að einhver sem lærði skák fyrir rúmu ári hafi náð því að halda jafntefli, þannig hann er alveg ótrúlegt efni þessi drengur,“ segir Björn.


Í viðtalinu við Vísi er einnig rætt við Björn Ívar Karlsson, skólameistara Skákskóla Íslands, sem segist hafa hitt Anh í fyrsta sinn þegar hann gekk inn fyrir dyr skákskólans í febrúar í fyrra, eða fyrir átján mánuðum. Hann segir að þá hafi Anh ekki kunnað orð í íslensku né vitað hvernig ætti að hreyfa taflmennina - og að hann hafi kennt honum mannganginn með bendingum.

Nafnarnir Björn Ívar Karlsson, skólastjóri Skákskóla Íslands, (til vinstri) og Björn Þorfinnsson, alþjóðlegur meistari í skák, segja við Vísi að þeir hafi ekki séð aðra eins hæfileika og hjá Anh. (MYND/Vísir/Einar)

Gafarvogur.net óskar okkar manni, Anh Hai Tran, velfarnaðar og það verður svo sannarlega fróðlegt að fylgjast með honum í skákinni á næstu árum en hann er sagður æfa skák margar klukkustundir á dag. Æfingin skapar meistarann.


Gangi þér allt í haginn, Anh Hai Tran. - JGH

Anh Hai Tran á skákæfingu hjá Skákdeild Fjölni. (MYND: Helgi Árnason).

Gífurlegur áhugi er á skákinni í Grafarvogi og það er jafnan vel mætt á æfingar Skákdeildar Fjölnis. (MYND: Helgi Árnason).