Teikningarnar hafa verið lagðar til hliðar og við skynjum að Reitir vilja vinna með íbúum

11. nóvember 2026

Elísabet Gísladóttir, formaður Íbúasamtaka Grafarvogs, segir að fundurinn með Reitum í síðustu viku hafa verið gagnlegur og þau hafi skynjað að Reitir vilji raunverulega vinna með íbúum Grafarvogs varðandi mótun nýrra tillagna um framtíð Spangarinnar. Hún segir að þær teikningar sem hafI verið kynntar til þessa hafi verið lagðar til hliðar og séu ekki lengur í gangi. „Næsta skref er að það verður boðað til almenns og opins kynningarfundar með Reitum þar sem íbúum gefst kostur á að koma sínum sjónarmiðum að og viðra hugmyndir sínar,“ segir Elísabet í samtali við Grafarvogur.net í morgun.


„Við vorum mjög ánægð með þennan fund með fulltrúum Reita og fögnum þeim viðbrögðum sem við fengum frá fyrirtækinu; að íbúarnir fári raunverulega að taka þátt í mótun Spangarinnar,“ segir Elísabet. „Í það minnsta skynjuðum við að Reitir ætla ekki að fara fram gegn íbúum. Það var tónninn á fundinum. Þær teikningar sem hafa verið kynntar eru núna út af borðinu og ég skil þetta þannig að byrjað verði upp á nýtt og málið þannig að vissu leyti komið á byrjunarreit.“


Enn hefur ekki verið ákveðið hvenær hinn almenni og opni kynningarfundur Reita með íbúum Grafarvogs verður haldinn en þar munu fulltrúar Reita kynna framhaldið og það vinnulag sem fyrirtækið sér fyrir sér með íbúum. - JGH

Elísabet Gísladóttir, formaður Íbúasamtaka Grafarvogs. (Aðsend mynd).

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri á fundi Félags sjálfstæðismanna í Grafarovogi á dögunum. Þar kom skýrt fram að hún hefði gert Reitum það ljóst að fyrirtækið yrði að vinna og móta tillögur um framtíð Spangarinnar með íbúum Grafarvogs.