Malbikað síðdegis og svo umferðaróhapp í ofanálag - „Umferðin síðdegis höndlar ekki svona mál,“ segir lögregluþjónn
Ártúnsbrekkan var kolstífluð í síðdegisumferðinni og mátti rekja tafirnar til malbikunarframkvæmda við Víkurveg sem og umferðaróhapps sem varð í ofanálag við mislægu gatnamótin við Elliðaárnar. Meðfylgjandi mynd er fengin frá Vegagerðinni og sýnir umferðina í Ártúnsbrekku um klukkan 18 síðdegis í dag.
Árni Friðleifsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir í samtali við mbl.is að „síðdegisumferðin höndli ekki svona mál.“ Fram kemur í fréttinni að samkvæmt vef Vegagerðarinnar hafi ramparnir á Víkurvegi inn og út úr Grafarholti verið malbikaðir og því lokaðir.
Á samfélagsmiðlum mátti sjá að ýmsir sem lentu í töfunum síðdegis hafi verið óhressir með að þessi tími dags hafi orðið fyrir valinu til að malbika og veltu því upp hvort ekki væri hægt að fara í slíkar framkvæmdir að kvöldi til þegar mesti umferðarþunginn er að baki. - JGH

Allt stíflað. Umferð í Ártúnsbrekkunni um klukkan 18 í dag. Ljósmynd/Vegagerðin.

