Sannir sigurvegarar! Atskákmeistarar árið 2026 og enn eitt titillinn í Grafarvoginn!
Enn og aftur er ástæða til að fagna í Grafarvoginum. Skákmeistararnir okkar í skákdeild Fjölnis urðu Íslandsmeistarar í atskák árið 2026 í gær. Vel gert. Snöggir að hugsa og sannir sigurvegarar hér á ferð og enn ein skrautfjöðurin í hatt þeirra Fjölnismanna því klúbburinn varð Íslandsmeistari skákfélaga árin 2024 og 2025. Það sem meira er; þessi kappar unnu með fullu húsi, fengu 14 stig af 14 mögulegum. Það sýnir styrk sveitarinnar. Svo sannarlega meistarabragur á Skákdeild Fjölnis sem Helgi Árnason formaður heldur svo vel utan um en hann sinnti hlutiverki liðsstjóra í gær, líkt og oft áður. Alls tóku 18 skáksveitir þátt í atskákmótinu sem TR hélt að þessu sinni.

Atskákmeistarar 2026! Aftari röð: Sigurbjörn J. Björnsson, Jón Trausti Harðarson, Oliver Aron Jóhannesson og Dagur Ragnarsson fyrirliði. Fremri röð: Bragi Þorfinnsson stórmeistari, Helgi Árnason liðsstjóri og Jóhann Arnar Finnsson. Ljósmynd: Tómas Tandri Jóhannsson.
Í skáksveit Fjölnis eru fyrrum Norðurlandameistarar Rimaskóla í skák ásamt stórmeistaranum og Grafarvogsbúanum, Braga Þorfinnssyni, og Hafnfirðingnum, Sigurbirni J. Björnssyni. Þess má geta að Breiðablik varð í 2. sæti og Taflfélag Reykjavíkur í 3. sæti. B-sveit Fjölnis sem er ung að árum stóð sig einni með miklum ágætum og náði 2. sæti B-sveita.
Skákin blómstar í Grafarvogi og svo sannarlega meistarabragur á starfinu. Afreksmenn. - JGH

Afreksmenn. Fimm liðsmenn í Skákdeild Fjölnis hækkuðu verulega á skákstigum með góðri frammistöðu.

Frá 3. umferðinni í gær þegar Fjölnismenn sigruðu Taflfélag Reykjavíkur og 1. sætið var orðið nokkuð öruggt.

Flestir í B-sveitinni eru ungir og efnilegir. B-sveitin lenti í öðru sæti B-sveita.

