Hildur verður örugglega spurð um Spöngina á fundinum í Grafarvogi á morgun

28. október 2026

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri mætir í Grafarvoginn á morgun þegar hún verður gestur á opnum fundi Félags sjálfstæðismanna í Grafarvogi. Fundurinn hefst klukkan 18:00 og verður í sal félagsins að Hverafold 3, verslunarmiðstöðinni Torginu, á annarri hæð.


Búast má við metaðsókn á fundinn.


Hildur mun fara yfir stöðu mála í borginni og þær aðgerðir sem meirihlutinn hefur ráðist í að undanförnu en mesta kastljósið hefur verið á sparnað, tiltekt í rekstri og hópuppsagnir. Sjá frétt Vísis í dag.


Hildur hefur haldið því fram að fjárhagsstaða borgarinnar sé erfið og ekki verði komist hjá alvöru tiltekt í rekstrinum. Reykjavíkurborg er eitt stærsta fyrirtæki landsins með um 11 þúsund starfsmenn.

Hildur mætir í Grafarvoginn á morgun og má búast við að spurningum rigni yfir hana á fundinum.

Fastlega má búast við að spurningum rigni yfir Hildi á morgun um málefni Grafarvogs og borgarinnar almennt. Meirihlutinn hefur fallið frá þéttingu byggðar í Grafarvogi sem fyrri meirihluta ætlaði að koma í gegn á síðasta kjörtímabili og varð til þess að hverfið nötraði mánuðum saman.


Stórt mál sem nú hefur verið afgreitt út af borðinu og sett í ruslafötuna.


En...

* Eru hugmyndir Reita um Spöngina of stórkarlalegar?

* Þétting byggðar í Grafarvogi afgreidd út af borðinu - en hvað þá með áform Reita um 170 til 200 

   íbúðir í Spönginni? Gengur það upp þegar búið er að afgreiða þéttinguna út af borðinu?

* Hvað með Bókasafnið í Grafarvogi? Verður það lagt niður?

* Er skólabókasöfnin ekki allt of lítil til að taka við auknu hluthverki?

* Hvað með að laga gatnamót Gufunesvegar, Rimaflatar og Strandvegar?

* Hvað með Gufunesið? Ætlar borgin ekki að fjölga bílastæðum þar og láta Strætó ganga þangað

   reglulega til jafns við önnur hverfi?

* Hvernig metur hún hugmyndir fjármálaráðherra um veggjöld innan borgarinnar?

* Er Hildur hlynnt Sundagöngum frekar en Sundabraut og ætlar hún að beita sér í málinu?

* Er nægilegt leikskólapláss í Grafarvogi?

* Hvað með Keldnalandið og áformin þar? Eru það komið á ís?

* Hvað með rándýra Borgarlínu - þarf ekki að endurskoða hana?

* Hversu slæm er fjárhagsstaða borgarinnar?

*  Reykjavíkurborg er með 11 þúsund manns í vinnu. Núverandi meirihluti er búinn að segja upp

   hátt í 100 starfsmönnum en þarf ekki að ráðast í miklu fleiri uppsagnir til að ná rekstrarkostnaði

   borgarinnar raunverulega niður?

* Hvað hefur komið borgarstjóra mest á óvart frá því hún tók við starfinu sl. vor?

* Er starf borgarstjóra eins skemmtilegt og hún gerði ráð fyrir?


Þetta er aðeins hluti af þeim sem spurningum sem vakna þegar borgarstjóri mætir í hverfið til að ræða málin milliliðalaust og er tilbúin að svara spurningum íbúa.


Klukkan átján á morgun - og málefni Grafarvogs beint í æð.
- JGH

Þessa fínu mynd fengum við lánaða hjá vefmiðlinum Vísi og er hún merkt ljósmyndara að nafni Lýður. (Vísir/Lýður).

Fundurinn með Hildi verður í sal Félags sjálfstæðismanna í Grafarvogi að Hverafold 3, 2. hæð.