Kraftur í Lions í Grafarvogi - stórtónleikar eftir viku og mæling blóðsykurs eftir hálfan mánuð

5. nóvember 2026

Það er kraftur í Lions-klúbbunum tveimur í Grafarvogi þessa dagana. Eftir viku, fimmtudagskvöldið 12. nóv., verða stórtónleikar í Grafarvogskirkju til styrktar BUGL og viku síðar, eða laugardaginn 21. nóv. verða klúbbarnir, Fjörgyn og Fold, með ókeypis blóðusykurmælingar í anddyri Húsgagnahallarinnar við Bíldshöfða en þetta er árlegt verkefni klúbbanna og er liður í baráttunni gegn sykursýki. Gildi blóðsykursins segir til um hvort viðkomandi leynist með sykursýki 2. Mjög þarft verkefni og verðmætt að hvetja sem flesta til að nýta sér þetta tækifæri og staldra við þennan laugardag í Húsgagnahöllinni og láta kanna blóðsykurinn.


TÓNLEIKARNIR NÆSTA FIMMTUDAGSKVÖLD

Annars er undirbúningur á fullu fyrir hina árlegu stórtónleika Lionsklúbbsins Fjörgynjar nk. fimmtudagskvöld í Grafarvogskirkju þar sem hver stórstjarnan af annarri stígur á stokk og tekur lagið.


Þarna mæta þau Dísella, Gissur Páll, Hebbi, KK, Mugison, Páll Óskar og Rebekka Blöndal og gera kvöldið eftirminnilegt.


Miðasala er núna í fullum gangi á Tix.is og að sögn Lions-manna hafa þessir tónleikar fest sig  rækilega í sessi og mikill áhugi á þeim.


Stórtónleikar í kirkjunni eftir viku og ókeypis blóðsykurmælingar eftir hálfan mánuð í Húsgagnahöllinni.


Það er sannarlega kraftur í klúbbum Lions í Grafarvogi. - JGH

Lítið mál að mæla en það getur forðað viðkomandi frá stórmáli.

Dísella Lárusdóttir.

Gissur Páll Gissurarson.



Páll Óskar Hjálmtýsson.

Herbert Guðmundsson.

Kristján Kristjánsson, KK.

Örn Elías Guðmundsson; Mugison.

Rebekka Blöndal.