Hluthafaspjall ritstjóranna - Guðmundur, forstjóri Brims, og Sylvia, forstjóri Nova
Það var gestkvæmt hjá okkur gömlu brýnunum í þættinum sem við tókum upp í hádeginu í gær og sýndur er á efnisveitunni Brotkast.is Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova, og Helgi Vífill Júlíusson, hlutabréfagreinandi hjá Reitun (IFS) mættu í þáttinn.
Á meðal þess sem rætt var um:
1.
Veiðigjöldin en Guðmundur Kristjánsson líkir formúlunni við útreikning þeirra við rússneska rúllettu.
2.
Nýjan makrílsamning Íslendinga þar sem kvótinn okkar fer úr 16,5% í 10,5%.
3.
Þjóðarskútuna - þar sem þær stöllur eru í brúnni en vélstjórarnir og vélin sem knýr skipið áfram er atvinnulífið - segir Guðmundur Kristjánsson.
4.
Kaupin á Lýsi og hvaða tækifæri Brim sér í þeim kaupum.
5.
Stórgóðan þriðja ársfjórðung hjá Brim þar sem makrílveiðar spiluðu stórt hlutverk.
6.
Þrætuna um veiðigjöldin sl. vor sem hækkuðu um 5 milljarða þegar upp var staðið - en kostuðu sitt þar sem fjárfestingar í kringum sjávarútveginn stöðvuðust nánast og fjöldinn allur af fyrirtækjum sem þjónusta sjávarútveginn hafi orðið fyrir miklum tekjumissi.
7.
Loforð fyrir kosningar um að hækka ekki skatta heldur taka til í ríkisfjármálunum en gera svo hið gagnstæða - þ.e. segja eitt fyrir kosningar en gera svo annað.
8.
Líklegar breytingar á fjarskiptafyrirtækinu Nova á næstu tveimur árum.
9.
Muninn á að vera í framlínu flugfélags eða fjarskiptafyrirtækis.
10.
Hvaða kúltúrþýðingu hefur diskókúlan og skautasvellið fyrir Nova? Hvað hugsun í stjórnun býr þarna að baki?
11.
Ölgerðin verður Bera í Kauphöllinni. Út af hvað gengur þessi nafnabreyting á Ölgerðinni.
12.
Skiptihlutföllin í sameiningaviðræðum Íslandsbanka og Skaga miðað við núverandi markaðsvirði fyrirtækjanna er 87-13, bankanum í vil, markaðsvirði hans er 258 milljarðar kr. en Skaga 38 milljarða kr. Hvernig getur staðið á því að gengi Íslandsbanka - sem núna er komið í 144 - fer sífellt hækkandi en gengi Skaga hefur lækkað frá uppsveiflunni í byrjun des.
13.
Gengi JBT-Marels hefur hækkað að undanförnu og greinir Helgi Vífill stöðuna hjá fyrirtækinu um þessar mundir.
14.
Gengi Alvotechs sem hefur lækkað hressilega á árinu en fjárfestar eru hins vegar bjartsýnir á að fleiri lyfjaleyfi fáist á næsta ári.
15.
„Lognið“ í Hrútafirðinum - og alast upp í vesturbænum.
Þetta og auðvitað margt fleira í hressilegu Hluthafaspjalli ritstjóranna. - JGH

Hér ræði ég við Sylvíu Kristínu Ólafsdóttur, forstjóra Nova.

Helgi Vífill Júlíusson, hlutabréfagreinandi hjá hjá Reitun (IFS).


