Ari telur að borgarlínan geti kostað hvert heimili í Grafarvogi hálfa milljón á ári vegna veggjalda um Ártúnsbrekku
Ari Edwald, borgarfulltrúi Miðflokksins, segir í mjög athyglisverðu viðtali í Morgunblaðinu í gær að borgarlínan geti kostað hvert heimili í efri og eystri byggðum borgarinnar um hálfa milljón á ári komi til umferðargjalda um Ártúnsbrekku. Borgarlínan og margumræddur Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins var mjög í umræðunni fyrir borgarstjórnarkosningarnar sl. vor og hart tekist á um málið. Þess má geta að Hildur Björnsdóttir borgarstjóri sagði á fundi Félags sjálfstæðismanna í Grafarvogi á dögunum að ekki kæmi til greina hjá núverandi meirihluta að vegaframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu verði fjármagnaðar umferðargjöldum innan borgarinnar eins og hugmyndir væru uppi um.
Þetta stefnir augljóslega í stórmál og finnst mörgum sem borgarlínan sé á eins konar „sjálfstýringu“ sem ekkert verður við ráðið. Að hún stýri ferðinni í stað þess að henni sé stýrt; að hún sé herra en ekki þjónn. Framkvæmdir eru á fullu vegna borgarlínunnar.
Í viðtalinu við Morgunblaðið í gær segir Ari Edwald orðrétt: „Eina lausnin sem ríkið hefur uppi í erminni er skattlagning og miðað við það sem við höfum heyrt af vinnu í ráðuneytum, má búast við því að umferðargjöld, t.d. um Ártúnsbrekku, hlaupi á hundruðum króna fyrir hverja ferð. Það er ekki óvarlegt að ætla að nýir skattar á hvert heimili í efri og eystri byggðum Reykjavíkur vegna borgarlínunnar geti orðið hálf milljón á hverju ári.“

Frá kosningafundinum í Gufunesi fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sl. vor þar sem hart var tekist á um borgarlínuna. Á fundinum varaði Ari mjög við hinum mikla kostnaði við borgarlínuna.
Í viðtalinu við Morgunblaðið gagnrýnir Ari ennfremur að ekki sé sýnt á spilin varðandi endurskoðun verkefnisins í heild.
Hann vill sömuleiðis að Reykvíkingar fái að segja sína skoðun á málinu og taka endanlega afstöðu til verkefnisins í íbúakosningu.
„Af hverju hefur ekki komið fram opinberlega hvernig staðið verður að skattlagningu til að borga fyrir framkvæmdirnar? Af hverju er þessi leyndarhyggja um kostnaðinn og fyrirhugaða skattlagningu? Íbúar Reykjavíkur eiga heimtingu á því að fá að sjá á þessi spil áður en lengra er haldið og fá að taka afstöðu til málsins í íbúakosningu,“ segir Ari Edwald í umræddu viðtali við Morgunblaðið.
Þess má geta að bílgreinin á Íslandi hefur til margra ára verið skattlögð langt umfram það sem rennur til Vegagerðarinnar og vegaframkvæmda.
Það er að hitna í kolunum. - JGH

Viðtal Morgunblaðsins við Ara Edwald í gær, þriðjudag, um borgarlínuna en þar kemur fram að unnið sé að því í ráðuneytum að leggja á umferðargjöld innan borgarinnar, t.d. á ferðir um Ártúnsbrekkuna.

Samstíga. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri og Ari Edwald á kosningafundinum í Skálanum í Gufunesi sl. vor. Hildur sagði á fundi Félags sjálfstæðismanna í Grafarvogi á dögunum að ekki kæmi til greina af hálfu núverandi meirihluta að borgarlínan verði fjármögnuð með umferðargjöldum innan borgarinnar.

