Skemmtilegi handboltafrasinn frá ÓL í Kína 2009 notaður í skákinni: Gott silfur - gulli betra

20. október 2026

Halldór Árnason, skákfrömuður og formaður Skákdeildar Fjölnis, sótti í hinn góða frasa íslenska landsliðsins í handbolta á Ólympíuleikunum í Kína frá árinu 2009 þegar hann sagði skemmtilega frá því að skáksveit Fjölnis hefði lent í 2. sæti á fjölmennu Íslandsmóti barna-og unglingasveita sem fram fór í íþróttahúsinu Miðgarði í Garðarbæ um helgina: „Gott silfur - gulli betra,“ skrifaði Helgi á sinn jákvæða og uppbyggilega hátt.


Íslenska landsliðið í handbolta varð í öðru sæti á ÓL í Peking og þá varð þessi frasi til og rætt um silfurliðið og silfurdrengina sem raunverulega gulldrengi.


En hvað um það, börnin og unglingarnir í Fjölni eru snillingar í skákinni og lentu öðru sæti á mótinu sl. sunnudag; tóku gott og gljáfægt silfrið!

A-sveit Fjölnis sem ásamt A-sveit TR var með yfirburði í „Opnum flokki“.

Rúmlega 150 þátttakendur tefldu á mótinu; alls 36 skáksveitir, þar af 7 frá Skákdeild Fjölnis. Aðeins KR-ingar voru fjölmennari. A-sveit TR varð Íslandsmeistari eftir æsispennandi keppni við A-sveit Fjölnis.


Þessar skáksveitir höfðu nokkra yfirburði í „Opnum flokki“, voru jafnar fyrir síðustu umferð og áttust við í lokin. Viðureignin endaði 3-1 fyrir TR.

A-sveit Fjölnis í B-flokki Íslandsmótsins.

Einnig var keppt í Íslandsmóti einstaklinga og þar unnu Fjölniskrakkarnir mörg silfurverðlaun.


„Fjölniskrakkarnir 30 sem tefldu fyrir Fjölni voru á aldrinum 7 - 15 ára og stóðu sig öll ljómandi vel,“ segir Helgi í færslu sinni af mótinu.


Skákin er algerlega til fyrirmyndar í Grafarvoginum. - JGH

Tyler Khang var yngsti þátttakandinn í skáksveitum Fjölnis. Ungur og efnilegur leikmaður.

Stelpurnar í Fjölni vekja jafnan athygli fyrir glæsta frammistöðu og fjölda leikmanna.