Grafarvogsbúinn Katrín Halldóra fjallkonan að þessu sinni

18. júní 2025
FJALLKONAN. Grafarvogsbúinn Katrín Halldóra Sigurðardóttir var í hlutverki fjallkonu Reykjavíkur við hátíðarhöldin í höfuðborginni í gær. 

Hún flutti ávarp eft­ir Þór­dísi Helga­dótt­ur á Aust­ur­velli og lokaði þar með hátíðar­at­höfn­inni - eft­ir að Halla Tóm­as­dótt­ir for­seti ávarpaði þaðan þjóðina í fyrsta sinn á þjóðhátíðar­degi. Sjá hér frétt mbl.is. 

Katrín Halldóra er löngu kunn sem leikari og söngkona en hún sló eftirminnilega í gegn í leikritinu Ellý sem sýnt var í Borgarleikhúsinu við metaðsókn. Þá hefur hún leyst Völu Kristínu Eiríksdóttur af í leiksýningunni Laddi og gert það mjög vel eins og hennar er von og vísa.

Svo má ef til vill segja að vel hafi farið á því að Grafarvogsbúar ættu fjallkonu Reykjavíkur í ár - en Fjallkonuvegur er jú í Grafarvogi. 

(Meðfylgjandi mynd er fengin úr frétt mbl.is og ljósmyndari er Hákon.)   - JGH