Dregur til tíðinda. Vegagerðin mælir með brú fremur en göngum. Ákvörðun fyrir áramót!
Það er að draga til tíðinda með Sundabrautina varðandi það hvort hún fari um brú eða jarðgöng, samkvæmt frétt Morgunblaðsins í gær, fimmtudag. Samkvæmt fréttinni leggur Vegagerðin til að Sundabrauin fari um frekar um brú sem þveri Kleppsvíkina en göng.
„Hljótt hefur verið um Sundabrautarverkefnið á undanförnum mánuðum en á næstunni gæti dregið til tíðinda því von er á ákvörðun um það hvaða leið verður valin til að þvera Kleppsvík,“ segir í upphafi fréttar blaðsins sem Sigtryggur Sigtryggson blaðamaður skrifar. (Myndin af brúnni er fengin hjá verkfræðistofunni Eflu og er hún eðlilega tölvugerð

Vegagerðin leggur til brú frekar en göng.
„Reykjavíkurborg hefur verið að undirbúa tillögur um breytingu á að alskipulagi vegna Sundabrautar. Má búast við að þær birtist undir lok ársins að því gefnu að samstaða náist milli ríkis og borgar varðandi leiðarvalið,“ er haft eftir Guðmundi Val Guðmundssyni, framkvæmdastjóra mannvirkjasviðs Vegagerðarinnar og formanns verkefnisstjórnar um undirbúning Sundabrautar, í fréttinni.
Þá segir í frétt blaðsins: „Valið stendur milli tveggja kosta í 1. áfanga verksins, brúar yfir Kleppsvík eða jarðganga undir víkina. Vegagerðin hefur mælt með Sunda braut á brú. Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) komst að sömu niðurstöðu í áliti um umhverfis mat vegna Sundabrautar, en álitið var gefið út í júní í sumar. Brú yfir Klepps vík sé betri kostur en jarðgöng.
Guðmundur Valur segir að frá því að umhverfismatsferli lauk með áliti HMS á umhverfismatsskýrslu Sundabrautar í sumar hafi Vegagerðin unnið að viðskiptaáætlun Sundabrautar ásamt undirbúningi rannsókna og annarra mótvægisaðgerða sem tengjast umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar. Í samstarfi við Reykjavíkurborg hefur verið unnið að frekari umferðargreiningum svo og útfærslu á mótvægisaðgerðum sem tengjast undirbúningi aðalskipulagsbreytinga hjá Reykjavíkurborg.
Vegagerðin hefur unnið að viðskiptaáætlun vegna Sundabrautar og liggur sú greining fyrir þannig að hægt sé að meta fjárhagslega sjálfbærni verkefnisins, sem er forsenda fyrir því að það komist til framkvæmda. Vegagerðin hefur hins vegar ekki hafið undirbúning að útboðsferli vegna Sundabrautar eins og ráðgert var þar sem fyrirhugað er að vísa verkefninu til nýs innviðafélags í samræmi við þingsályktun um samgönguáætlun 2026–2040.“
Það er augljóslega að draga til tíðinda í þessu talsverða hitamáli. Brú eða göng, hvað vilja Grafarvogsbúar?
- JGH

Brú eða göng? Hvað vilja Grafarvogsbúar? (Tölvumynd/Efla).

